
Fjarviðtöl í sálfræðimeðferð bjóða upp á sveigjanleika og aðgengi sem hentar mörgum. Þú getur fengið stuðning hvar sem þú ert, án þess að þurfa að ferðast eða taka frá mikinn tíma úr dagskránni. Fyrir suma veitir það öryggi og þægindi að tala við sálfræðinginn sinn í eigin umhverfi. Fjarviðtöl eru einnig hentug fyrir þá sem búa á landsbyggðinni eða eiga erfitt með að komast í viðtöl á staðnum. Rannsóknir sýna að fjarmeðferð getur verið jafn áhrifarík og hefðbundin meðferð, svo lengi sem þér líður vel með formið.