Sálfræðingar

Dr. Davíð R. M. A. Höjgaard, Sálfræðingur, PhD

Veitir viðtöl á eftirfarandi tungumálum: íslensku, dönsku og ensku.

Eftir grunnnám í Sálfræði við Háskóla Íslands útskrifaðist Davíð sem sálfræðingur frá háskólanum í Aarhus áríð 2012 og lauk síðan doktorsnámi frá læknadeild við sama háskóla árið 2017. Síðan hefur hann starfað á barna og unglingageðdeildinni í Aarhus við rannsóknir og meðferð á áráttu- þráhyggjuröskun.

Hugræn atferlismeðferð (HAM) er það meðferðarform sem Davíð vinnur helst með auk þess að nýta þætti úr öðrum tegundum meðferða. Hann veitir þjónustu við fólk með margvíslegann vanda eins og til dæmis kvíða, áráttu- þráhyggjuröskun (OCD) og þunglyndi. Hann er með löggildingu frá Landlækni til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi.

Davíð hefur birt fjölda vísindagreina og bókakafla auk þess að hafa kynnt rannsóknir á alþjóðlegum ráðstefnum. Sjá má ritskrá hans með því að smella á linkinn hér fyrir neðan.