Um okkur
Heimasíða sálarsetursins er https://www.salarsetrid.is.
Hvaða upplýsingar um þig geymum við og af hverju?
Athugasemdir við greinar/pistla
Þegar gestir skilja eftir athugasemdir undir greinar og pistla hjá okkur geymir síðan athugasemdina auk IP tölu og tegund vafra þess sem skrifar hana. Þetta hjálpar okkur að koma í veg fyrir óviðeigandi færslur og færslur búnar til af róbottum.
Samskipti og bókanir
Þegar þú skrifar okkur skilaboð gegnum heimasíðuna, þá geymum við skilaboðin ásamt netfangi þínu og nafni til þess að geta svarað fyrirspurn þinni. Þegar þú bókar tíma, þá geymum við nafn þitt, fæðingardag, símanúmer og netfang.
Vafrakökur
Hvað eru vafrakökur?
Vafrakökur (e. cookies) eru litlar textaskrár sem geymdar eru á vafra notenda og greina heimsóknir og geyma kjörstillingar.
Til eru mismunandi vafrakökur sem hafa ólíkan tilgang. Sumar vafrakökur eru nauðsynlegar fyrir virkni vefsíðunnar, t.d. til þess að veita notendum aðgang að svæðum vefsins og notfæra sér þjónustu sem síðan bíður upp á. Ekki er hægt að loka fyrir notkun nauðsynlegra vafrakaka.
Aðrar vafrakökur eru t.d. notaðar til greininga á vefsvæðum eða í markaðslegum tilgangi. Sálarsetrið notar ekki vafrakökur í auglýsingaskyni.
Hér að neðan er að finna nánar upplýsingar um þær vafrakökur sem Sálarsetrið notar á vefsíðu sinni, tilgang þeirra og gildistíma.
Mismunandi tegundir af vafrakökum
Nauðsynlegar
Þessar vafrakökur tryggja grunn virkni síðunnar, tryggja öryggi hennar og upplýsinga sem þú gefur okkur. Einnig eru þær nauðsynlegar til að hægt sé að greiða fyrri þjónustu með greiðslukorti.
Virkni heimasíðu
Þetta eru vafrakökur sem bæta virkni við heimasíðuna. Þetta geta verið kökur sem gera þér kleift að deila heimasíðunni á samskiptamiðla.
Greining
Greiningarkökur geyma upplýsingar um það hvernig gestir nota síðuna. Þetta gefur okkur upplýsingar um fjölda skoðana og hvaðan gestrinir opna síðuna.
Frammistaða
Þetta eru kökur sem ætlað er að auka frammistöðu heimasíuðunnar og bæta upplifun gesta á henni. Sálarsetrið notar ekki slíkar vafrakökur.
Auglýsingar
Þetta eru vafrakökur sem eru notaðar til að sníða auglýsingar að gestum síðunnar. Einnig skár þær hverjir skoða auglýsingarnar og hversu oft. Sálarsetrið notar ekki slíkar vafrakökur.
Óflokkað
Hér birtast vafrakökur sem geta þjónað ýmsum öðrum hlutverkum en greint er frá í flokkunum hér að ofan.
GDPR
GDPR (General Data Protection Regulation) er reglugerð Evrópusambandsins er varðar notkun persónuupplýsinga. Heimasíða okkar uppfyllir allar kröfur GDPR.
Með hverjum deilum við upplýsingunum um þig?
Við deilum ekki upplýsingunum sem þú skráir á síðuna með neinum öðrum en þeim sálfræðing sem þú pantar tíma hjá.
Hversu lengi geymum við upplýsingarnar þínar?
Upplýsingarnar sem þú veitir okkur þegar þú bókar viðtal geymum við á meðan þú ert í viðskiptum við okkur og í allt að 2 ár eftir síðasta viðtal þitt. Eftir það er þeim eytt. Þú getur hvenær sem er skráð þig inn á síðuna og eytt upplýsingunum sjálf/ur. Einnig getur þú haft samband við okkur með tölvupósti og beðið okkur um að aðstoða þig við að eyða þeim. Athugið að afrit af reikningum eru geymd lengur í samræmi við skattalög.
Hvaða rétt hefur þú yfir upplýsingunum þínum?
Þú átt rétt á því að fara fram á við okkur að eyða upplýsingum um þig hvenær sem er. Reikningar eru þó geymdir í samræmi við skattalög.
Sjúkragögn
Við geymum engar heilbrigðisupplýsingar um þig á netþjóninum okkar. Hver sálfræðingur sér sjálfur um að geima þær upplýsingar sem hann aflar frá skjólstæðingum sínum.
Tölvupóstur
Allur tölvupóstur á vegum sálarsetursins (sem endar á sálarsetrid.is) er þjónustaður af Protonmail. Þannig eru engin skilaboð frá þér geymd á netþjónunum okkar. Ef brotist er inn á netþjóninn er því engin leið að komast í tölvupóstana okkar. Protonmail er þjónusta sem sérhæfir sig í dulkóðuðum tölvupósti. Allur póstur sem berst okkur er dulkóðaður um leið og han berst á netþjóna Protonmail. Ef viðskiptavinur notar sjálfur Protonmail, þá eru öll skilaboð “end-to-end” dulkóðuð. Lestu meira um Protonmail hérna: https://proton.me/mail
Hvernig tryggjum við öryggi heimasíðunnar?
Heimasíðan www.sálarsetrið.is er hýst á svökölluðum VPS netþjóni. Þetta tryggir það að engar aðrar síður eru hýstar á sömu IP tölu. Hýsingaraðilinn fær greitt fyrir að uppfæra netþjóninn reglulega þannig að það gleymist aldrei. Upplýsingar um þig eins og nafn og netfang eru dulkóðuð á netþjóni okkar. Einnig erum við með tvær gerðir af sérstökum öryggisbúnaði sem ætlað er að koma í veg fyrir hvers konar árásir á heimasíðuna og tryggja þannig að gögn komist ekki í rangar hendur.
Hvað gerist ef brotist er inn á netþjóninn sem hýsir heimasíðuna okkar?
Ef svo illa vildi til að brotist væri inn á netþjóninn sem geymir síðuna okkar og upplýsingar sem geymdar eru þar komast í rangar hendur, þá munum við innan 72 tíma tilkynna viðskiptavinum okkar það í tölvupósti.